Skip to main content
Flokkur

Uncategorized @is

Sláturfjáráætlun seinni umferðar.

Eftir Uncategorized @is
  Sælir bændur. Hér kemur áætlun seinni umferðar. Smellið hér. Þetta gengur hratt fyrir sig núna sökum þess að sláturtíð styttist um 3 daga vegna fækkunar sláturfjár. Við ætlum að taka rollur þann 6 október. Baldur og Eggert verða í sambandi við einhverja sem eru búnir að fara í gegnum þær. Þann 15 október verðum við svo byrjaðir að taka fullorðið og reiknum með að klára sláturtíð annað hvort mánudaginn 18 eða þriðjudaginn 19. Kveðja Víkingur  
Nánar

Sláturfjáráætlun fyrri umferðar.

Eftir Uncategorized @is
Sælir bændur. Hér kemur áætlun fyrri umferðar. Látið mig endilega vita ef þið eruð ekki sáttir við  sláturdag eða magn. Ekki náðist nægjanlegur fjöldi lamba til að fylla í alla daga fyrir helgi þannig að við hefjum sláturtíð þann 16.september. Tek það fram að áætlun getur breyst mikið ef breyta þarf mörgum tölum. Bið ykkur því að fylgjast vel með ef kemur ný áætlun. Ég mun senda ykkur hana í tölvupósti og birta á innleggjendasíðunni á Facebook. Endilega látið mig vita sem fyrst ef þið hafið athugasemdir. Áætlun fyrri umferðar. Kveðja Björn Víkingur
Nánar

Netverslun hjá Fjallalambi.

Eftir Uncategorized @is
Nú í dag opnuðum við fyrir netverslun á www.fjallalamb.is. Set hér rekil sem leiðir ykkur beint inn á netverslunina. Smellið hér. Þetta er mjög mikilvægt skref fyrir Fjallalamb og gefur þeim viðskiptavinum  sem vilja eingöngu vörur frá okkur möguleika á því að versla þær á einum stað. Vonum að netverslunin gangi vel í framtíðinni. Kveðja Víkingur
Nánar

Rekjanlegt hangikjöt.

Eftir Uncategorized @is
Nú er rekjanlega Hólsfjallahangikjötið komið á markað. En það er Hólsfjallahangikjöt rekjanlegt til framleiðenda. Rekjanlega hangikjötið okkar  fæst í verslunum Nettó um land allt. Hér getið þið nálgast upplýsingar um það hverjir eru að selja vörur frá Fjallalambi. https://fjallalamb.is/solustadir-fjallalambs/ Kveðja Björn Víkingur Björnsson
Nánar

Uppfærð áætlun þann 06.10.2020

Eftir Uncategorized @is
Sælir bændur. Hér kemur uppfærð sláturfjáráætlun. Þann 13.október er trúlega síðasti hreini lambadagurinn. Eftir það förum við að klára upp allt sláturfé sem eftir er á hverjum bæ. Það er afar mikilvægt að við fáum tölur frá ykkur yfir það sem er eftir fyrir komandi helgi. Kveðja Björn Víkingur. Sjá betur hér. Kveðja Víkingur
Nánar