Skip to main content

Syðri-Brekkur 1 Langanesi.

Ábúendur: Kristján Indriðason.

Kristján er þáttakandi í:

  • Gæðastýrðri sauðfjárrækt.

Kristján hefur stundað búskap á Syðri-Brekkum síðan 1992.

Á innanverðu Langanesi, frá því skammt innar en Þórshöfn og langt inn í heiði
ligggur Brekknafjall, að vestan allbratt og víða klettótt en annars nokkuð gróið enda
ekki ýkja hátt. Töðugresislautir og bollar eru þar víða og mjög skjólgott. Undir þessu
fjalli miðju, u.þ.b. sjö kílómetrum frá kauptúninu Þórshöfn, stendur jörðin Syðri-
Brekkur. Jörðinni var skipt í tvö býli Syðri- Brekkur I og Syðri-Brekkur II, árið 1972.
Landlýsing fyrir bæði býlin er þó hin sama. Bæði sunnan og norðan við bæina er allt
frá fjallsrótum slétt mýrlendi, sem hallar aðeins mót vestri niður að Hafralónsá og
Lónafirði. Neðan til eru mýrarnar sandbornar og sandbakkar og sandbörð niður
við sjóinn. Hefur nú allmikið af þessum mýrum verið ræst fram og nokkur hluti
þeirra orðinn að túni. Ofan við fjallið er kjarngott land til sumarbeitar.
Útsýn er hin fegursta frá Syðri-Brekkum vestur yfir land og sjó inn með fjöllum tilkristjan.1
heiða og norður til Langaness.

Myndagallerý

Hér eru ýmsar skemmtilegar myndir frá bænum og fjölskyldunni sem þar býr

Senda fyrirspurn á sveitabæ

Hér getur þú haft samband beint við bóndann á þessum bæ

    Nafn/Name (þarf/necessary)

    Netfang/Email (þarf/necessary)

    Skilaboð/Message