Skip to main content

Afurðaverð til bænda haustið 2022

Eftir Uncategorized @is
Sælir bændur. Hér komur afurðaverð til ykkar. Verðskrá fyrir vörur og þjónustu kemur síðar. Vil endilega biðja ykkur um að senda mér tölur um fjölda sláturfjár. Best að senda það á fjallalamb@fjallalamb.is  eða hringja í 4652140. Hér er verðskráin. Kveðja Víkingur.
Nánar

Sláturfjáráætlun seinni umferðar.

Eftir Uncategorized @is
  Sælir bændur. Hér kemur áætlun seinni umferðar. Smellið hér. Þetta gengur hratt fyrir sig núna sökum þess að sláturtíð styttist um 3 daga vegna fækkunar sláturfjár. Við ætlum að taka rollur þann 6 október. Baldur og Eggert verða í sambandi við einhverja sem eru búnir að fara í gegnum þær. Þann 15 október verðum við svo byrjaðir að taka fullorðið og reiknum með að klára sláturtíð annað hvort mánudaginn 18 eða þriðjudaginn 19. Kveðja Víkingur  
Nánar

Sláturfjáráætlun fyrri umferðar.

Eftir Uncategorized @is
Sælir bændur. Hér kemur áætlun fyrri umferðar. Látið mig endilega vita ef þið eruð ekki sáttir við  sláturdag eða magn. Ekki náðist nægjanlegur fjöldi lamba til að fylla í alla daga fyrir helgi þannig að við hefjum sláturtíð þann 16.september. Tek það fram að áætlun getur breyst mikið ef breyta þarf mörgum tölum. Bið ykkur því að fylgjast vel með ef kemur ný áætlun. Ég mun senda ykkur hana í tölvupósti og birta á innleggjendasíðunni á Facebook. Endilega látið mig vita sem fyrst ef þið hafið athugasemdir. Áætlun fyrri umferðar. Kveðja Björn Víkingur
Nánar