Skip to main content

Gunnarsstaðir ehf. Gunnarsstöðum Þistilfirði

Ábúendur: Axel Jóhannesson, Valgerður Friðriksdóttir og Sigríður Jóhannesdótti og Júlíus Þröstur Sigurbjartsson.

Á lista yfir úrvalsbú á landsvísu samkvæmt RML framleiðsluárið 2015.

Bændur á Gunnarsstöðum eru þáttakendur í:

  • Bændur græða landið.

  • Gæðastýrðri sauðfjárrækt.

Núverandi ábúndur tóku við jörðinni 2013.
Austasta jörðin sem á land að sjó í hreppnum er Gunnarsstaðir, vestan megin
við botn Lónafjarðar. Um það bil 1 km austan við þjóðveginn sunnan við Garðá
þar sem hún rennur í dálitlu gili,er mikil húsaþyrping, fjögur íbúðarhús ásamt útihúsum.
Stutt er til sjávar og niður að Hafralónsárósi. Norðan við Garðá eru
einnig peningshús og víðlend tún út með sjónum, framræst mýrlendi.
Suður með bænum er flatur flói, nú ræstur fram að nokkru og tekinn til ræktunar.
Laust eftir aldamótin lét Árni Davíðsson hlaða stíflugarða og veita vatni úr Garðá á
þetta stóra svæði. Reyndist það árvisst engi og heygott, nytjað fram um 1950. Norðan
við flóann er þurr, sendin landræma, Röndin, sem sífellt er að gróa upp oggunnarsstaðir
breikka. Þar fyrir norðan er sléttur sandur út í flæðarmál. Á þessu svæði var áður
nokkurt kríuvarp. Sunnan og austan við flóann er allvíðáttumikið, heilgróið lyngmóasvæði,
Önundardalur. Grunnt mýrardrag skipir þessu svæði í Efri- og Neðrimóa.
Þar var áður þrautabeit, nú víðlend tún.

Myndagallerý

Hér eru ýmsar skemmtilegar myndir frá bænum og fjölskyldunni sem þar býr

Senda fyrirspurn á sveitabæ

Hér getur þú haft samband beint við bóndann á þessum bæ

    Nafn/Name (needed)

    Netfang/email (needed)

    Skilaboð/ message