Syðra-Áland Þistilfirði Ábúendur: Ólafur B Vigfússon og Karen Konráðsdóttir. Bændur á Syðr-Álandi eru þáttakendur í : Bændur græða landið. Gæðastýrðri sauðfjárrækt. Ólafur og Karen hafa stundað búskap á jörðinni síðan 1997. Syðra-Áland var áður kallað FremraÁland. Af þjóðvegi norðan í Skógarási liggur vegur að Syðra-Álandi, ca. 4 km. Íbúðarhúsið stendur á allháum mel og peningshúsin spölkorn norðar, 600-700 m frá Hölkná. Út og suður frá bænum skiptast á melkollar, mólendi og mýrarsund. Til vesturs, nær óslitið að Sandá, eru víðáttumiklir, þurrir viðarmóar, vel grónir. Þar er besta vetrarbeit í landareigninni og beitarhús voru þar áður fyrr við Húsadal. Þar er einnig gott berja- og grasaland. Skammt vestan við bæinn…
Nánar