Skip to main content

Sláturtíð haustið 2017 lokið.

Kláruðum sláturtíð í haust föstudaginn 23.október.  Sláturtíð gekk með eindæmum vel.

Meðalþungi lamba var nokkuð lægri en haustið 2016 eða 15,73 á móti 16,4 í fyrra.

Fjöldi sláturfjár var um 29.900 sem er um 800 stk. meira  en 2016.

Lömb voru almennt vel á sig komin en fitulítil fyrri hluta sláturtíðar.

Það er svolítið undarlegt að þrátt fyrir þessa lækkun á meðalþunga þá er vöðvafyllingin meiri nú en 2016.

Kveðja Björn Víkingur Björnsson