Skip to main content

Þann 21 október lukum við sláturtíð hér í Fjallalambi.

Sláturtíð gekk vel enda hvorki gránaði jörð né hvítnaði. Það hefur ekki gerst oft.

Slátrað var alls 29.071 gripum þetta haustið.

Meðalþungi var 16.44 kg sem er um 900 grömmum þyngra en haustið 2015. Einkunn fyrir hold 9,24 og fitu 6,74.

Það sem einkenndi lömb þessarar sláturtíðar var holdleysi. Lömb voru þung en fóru mikið í fituflokk 2.

En almennt lömb mjög falleg og vel á sig komin.

Vorum með mjög góða starfsmenn þetta haustið og hefur sláturlínan sjaldan gengið eins vel. Allir dagar kláraðir á tilsettum tíma.

Kveðja

Björn Víkingur Björnsson.