Skip to main content

Sláturfjáráætlun seinni umferð.

Eftir september 24, 2018Uncategorized @is

Sælir bændur

Hér er áætlun seinni umferðar. Munið að ég tek ekki við fullorðnum hrútum eftir mánaðarmót september-október.

Reikna með að byrjað verði  að slátra fullorðnum ám 11-12.október.  Við munum hringja í ykkur þegar fer að líða á þá viku til að fá loka tölur.

Mjög mikilvægt er að þið séuð tilbúnir með loka tölur í vikunni. 8-12 október.  Vona að við náum að klára sláturtíð miðvikudaginn 17 eða í síðasta lagi um hádegi þann 18 okt.

Kveðja Víkingur